Byrjunarlið Liverpool er klárt gegn Ludogorets í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Stærsta breytingin frá deildarleiknum gegn Crystal Palace um liðna helgi er líklega að varnarmaðurinn Dejan Lovren er ekki í byrjunarliði Liverpool. Reynsluboltinn Kolo Touré kemur í hans stað í hjarta varnarinnar.
Jordan Henderson er kominn aftur á miðjuna eftir að hafa verið veikur og þá er Rickie Lambert fremsti maður. Líklega mun fyrirliðinn Steven Gerrard spila framar á vellinum en vanalega í kvöld.
Byrjunarlið Liverpool: Mignolet, Manquillo, Skrtel, Touré, Johnson, Lucas, Allen, Henderson, Gerrard, Sterling, Lambert. Leikurinn hefst kl. 19.45.