Andre Villas-Boas fyrrverandi knattspyrnustjóri Tottenham og Chelsea og núverandi þjálfari rússneska liðsins Zenit Peterburg segist ekki hafa löngun til að starfa aftur á Englandi.
Villas-Boas hefur verið orðaður við Liverpool upp á síðkastið enda pressa komin á knattspyrnustjórann Brendan Rodgers vegna slaks árangur liðsins á tímabilinu.
„Ég hef ekki áhuga á að fara til Liverpool. Að snúa aftur til Englands er einfaldlega ekki inni í myndinni hjá mér. Mér líkaði það vel á þjálfa á Englandi, það ver jákvæð reynsla en neikvæðir hlutir átt sér líka stað,“ sagði Villas-Boas við portúgölsku sjónvarpsstöðina TV1.