Steven Gerrard fyrirliði Liverpool hvetur liðsfélaga sinn Raheem Sterling til að halda kyrru fyrir hjá félaginu og halda áfram á sömu braut.
Sterling er með samning við Liverpool sem gildir til 2017 en hefur hafnað tilboði félagsins um nýjan samning. Hann skoraði tvö mörk gegn Bournemouth í deildabikarnum í gærkvöld.
„Ég vona að hann geri nýjan samning við félagið vegna þess að ég tel að þetta félag sé fullkomið fyrir hann, í það minnsta næstu árin,“ sagði Gerrard við Telegraph.
„Hann mun spila hérna flestar vikur og stuðningsmennirnir elska hann. Hann getur þróast hérna og orðið leikmaður í allra fremstu röð. Þess vegna vona ég að fólkið í kringum hann gefi honum rétt ráð því hann ætti að halda kyrru fyrir hérna,“ sagði Gerrard, sem líkir Sterling við framherja sem fóru á kostum í búningi Liverpool.
„Þegar maður lítur upp þá er hann alltaf að gefa manni möguleika með hlaupunum sínum, og á því hef ég þrifist allan minn feril með menn á borð við Fernando Torres og Michael Owen. Það jafnast ekkert á við það þegar maður, sem miðjumaður, lítur upp og sér hröð hlaup inn fyrir vörnina. Ég sá það oft gerast gegn Bournemouth [í deildabikarnum í gærkvöld] og vonandi heldur það áfram því þetta teygir á andstæðingnum og opnar tækifæri,“ sagði Gerrard.