Chelsea endurheimti í kvöld þriggja stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 2:0 sigur gegn Stoke á Britannia vellinum í Stoke.
Chelsea fékk óskabyrjun þegar fyrirliðinn John Terry skoraði með skalla eftir hornspyrnu á 2. mínútu leiksins sem Cesc Fabregas tók. Fabregas innsiglaði svo sigurinn þegar hann skoraði annað markið á 78. mínútu eftir sendingu frá Edin Hazard.
Chelsea er með 42stig í toppsæti deildarinnar, Manchester City er með 39 og Manchester United er í þriðja sætinu með 32 stig. Stoke er 13. sætinu með 19 stig.
Smellið á ENSKI BOLTINN Í BEINNI til að fylgjast með gangi frá leiknum.