Wayne Rooney fyrirliði Manchester United er ánægður með þá ákvörðun Louis van Gaal, knattspyrnustjóra, að gefa frí frá æfingu í dag, jóladag.
Þetta er í fyrsta sinn í 27 ár sem Manchester United æfir ekki á jóladag en liðið tekur á móti Newcastle í deildinni á morgun.
„Við æfum ekki á jóladag og því eyðum við deginum heima sem er gott fyrir erlendu leikmennina og fyrir okkur sem eigum börn,“ sagði Rooney við enska blaðið Daily Mail en hann á tvo syni.
„Það hlýtur að vera skrýtið fyrir nýju leikmennina að spila fleiri leiki en nokkurn tímann áður yfir jólin en vanalega hafa þeir verið í fríi,“ sagði Rooney.