Neil Lennon knattspyrnustjóri Bolton hrósaði gömlu mönnunum, Eiði Smára, og Emile Heskey eftir sigur Bolton gegn Blackburn í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.
Heskey, sem verður 37 ára gamall í næsta mánuði, skoraði fyrra mark Bolton eftir sendingu frá hinum 36 ára gamla Eiði og Heskey skoraði þar með sitt fyrsta mark á Englandi síðan í ágúst 2011.
„Aðeins Guðjohnsen gat séð þessa sendingu og mér fannst Heskey ógnvekjandi eftir að hann kom inná,“ sagði Lennon en lið hans er nú ósigrað í átta leikjum í röð.
„Ef ég á að vera heiðarlegur þá átti ég ekki von á þessu frá Emile. Það lyftu allir brúnum þegar ég fékk hann en núna geta menn sé af hverju. Hann og Eiður eru 73 ára samtals en þeir lyftu leik okkar á hærra plan,“ sagði Lennon.