Gylfi Þór Sigurðsson fékk hæstu einkunn allra leikmanna á vellinum í viðureign Swansea og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Gylfi fékk 8 í einkunn en hann skoraði eina mark leiksins með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 13. mínútu leiksins.
Gylfi verður næst í eldlínunni með Swansea á Anfield á mánudaginn þegar liðið sækir Liverpool heim.