Gylfi Þór Sigurðsson er í liði ársins í ensku úrvalsdeildinni hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC sem hefur valið liðið nú þegar deildarkeppnin er svo til hálfnuð.
Gylfi hefur átt frábæru gengi að fagna með Swansea á leiktíðinni en hann hefur skorað 3 mörk í deildinni og hefur átt 8 stoðsendingar.
Meðal fleiri leikmanna sem eru í liði ársins fyrir fyrri hluta keppnistímabilsins eru Sergio Agüero (Manchester City), Alexis Sanchez (Arsenal) og Diego Costa (Chelsea).
Gylfi og félagar hans í Swansea verða næst í eldlínunni í ensku úrvalsdeildinni á mánudagskvöldið þegar liðið sækir Liverpool heim á Anfield.