Torres fer endanlega til AC Milan í janúar

Fernando Torres er endanlega á förum frá Chelsea.
Fernando Torres er endanlega á förum frá Chelsea. AFP

Framherjinn Fernando Torres mun ganga endanlega til liðs við AC Milan á Ítalíu, en hann er nú á láni hjá félaginu frá Chelsea. Enska félagið hefur staðfest það á vef sínum.

Torres er uppalinn hjá Atlético Madrid og raðaði inn mörkunum áður en Liverpool keypti hann árið 2007. Þaðan fór hann til Chelsea fyrir 50 milljónir punda fjórum árum síðar en náði sér aldrei á strik. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til uppeldisfélagsins síðustu daga, þá helst á láni, en nú er staðfest að skiptin verði endanleg til AC Milan og gangi í gegn þann 5. janúar.

Hinum þrítuga Torres er á vef Chelsea þakkað fyrir þjónustu sína fyrir félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert