Podolski farinn til Ítalíu

Lukas Podolski í leik með Arsenal í Meistaradeildinni í desember.
Lukas Podolski í leik með Arsenal í Meistaradeildinni í desember. AFP

Þýski framherjinn Lukas Podolski, sóknarmaður Arsenal er farinn til Inter Mílanó á Ítalíu á láni út leiktíðina en hann stóðst læknisskoðun í morgun.

Podolski hefur ekki náð að heilla Arséne Wenger knattspyrnustjóra Arsenal á þeim tíma sem hann hefur verið hjá Lundúnarfélaginu en hann hefur verið þar í 2 og hálft ár 

Yfirlit yfir öll félagaskipti sem eiga sér stað í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert