Spænskur kantmaður til Villa

Carles Gil í leik með Levante í vetur.
Carles Gil í leik með Levante í vetur. AFP

Enska knattspyrnufélagið Aston Villa hefur fest kaup á spænska kantmanninum Carles Gil frá Valencia en félagið skýrði frá því á Twitter rétt í þessu að kaupin væru frágengin.

Gil er 22 ára gamall, fæddur í Valencia og hefur verið hjá  félaginu frá unga aldri. Hann á þó aðeins 8 leiki að baki með Valencia í efstu deild á Spáni en hann lék með Elche sem lánsmaður undanfarin tvö tímabil. Þá hefur hann spilað með spænska 21-árs landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert