Kramaric kominn með atvinnuleyfið

Stuðningsmenn Leicester standa þétt við gakið á Nigel Pearson knattspyrnustjóra, …
Stuðningsmenn Leicester standa þétt við gakið á Nigel Pearson knattspyrnustjóra, sem nú hefur fengið góðan liðsauka. AFP

Króatíski knattspyrnumaðurinn Andrej Kramaric hefur fengið atvinnuleyfi á Bretlandseyjum eftir talsverða bið og þar með er frágengið að hann gengur til liðs við Leicester frá Rijeka í heimalandi sínu.

Kramaric er 23 ára gamall sóknarmaður sem hefur skorað 37 mörk í 42 deildaleikjum fyrir Rijeka undanfarin tvö ár. Þá hefur hann skorað tvívegis í fyrstu fjórum A-landsleikjum sínum fyrir Króatíu, eftir að hafa gert fullt af mörkum fyrir yngri landslið þjóðar sinnar. Samtals hefur hann gert 67 mörk í 129 deildaleikjum í Króatíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert