José Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea veitti engin viðtöl eftir leikinn gegn Englandsmeisturum Manchester City á Stamford Bridge í kvöld.
Mourinho aflýsti í gær vikulegum fréttamannafundi en hann vildi með því láta í ljós óánægju sína með ákvörðun aganefndar enska knattspyrnusambandsins að úrskurða framherjann Diego Costa í þriggja leikja bann.