Stuart Pearce er hættur sem knattspyrnustjóri enska B-deildarliðsins Nottingham Forest.
Forest tapaði fyrir Millwall, 1:0, á heimavelli í gær og það reyndist síðasti leikurinn sem Pearce stýrði liðinu í en þessi fyrrverandi landsliðsmaður Englendinga lék með liðinu á árum áður.
Eftir góða byrjun á tímabilinu hefur allt gengið Forest í mót. Liðið hefur ekki unnið leik á heimavelli síðan í nóvember og er í 12. sæti.