Egypski landsliðsmaðurinn Mohamed Salah er farinn frá Chelsea til ítalska liðsins Fiorentina.
Um 18 mánaða lánssamning er að ræða en samningurinn er hluti af félagaskiptum Kólumbíumannsins Juan Cuadrado frá Fiorentina til Chelsea.
Fiorentina mun hafa möguleika á semja við Salah til frambúðar sumarið 2016.
Salah er 22 ára kantmaður en Chelsea keypti hann fyrir ári síðan af Basel í Sviss. Hann hefur spilað 13 leiki með Lundúnaliðinu í úrvalsdeildinni og skorað tvö mörk.