Wayne Rooney fyrirliði Manchester United setti met með mörkunum tveimur sem hann skoraði fyrir United í sigrinum gegn Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Rooney er fyrsti leikmaðurinn sem skorar 10 mörk eða fleiri 11 tímabilið í röð í ensku úrvalsdeildinni en annað markið sem Rooney skoraði í dag var hans 10. í deildinni á tímabilinu.