Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur kært Mile Jedinak vegna olnbogaskotsins sem hann gaf Diafra Sakho í leik Crystal Palace og West Ham um helgina.
Eins og fram hefur komið á Jedinak, sem er fyrirliði Palace, yfir höfði sér fjögurra leikja bann vegna málsins en hann hefur þegar fengið rautt spjald einu sinni á tímabilinu.
Jedinak og Crystal Palace hafa nú sólarhring til að bregðast við kærunni en allt útlit er fyrir að fyrirliðinn missi af leikjum við Southampton, QPR, Stoke City og Manchester City.