Stuðningsmenn Liverpool eru farnir að undirbúa sig undir að fylgjast með liði sínu án Steven Gerrards en sem kunnugt er mun Gerrard hverfa á braut í sumar og ganga í raðir LA Galaxy.
En lífið án Gerrards kann að verða ekki eins hræðilegt eftir allt saman því staðreyndin er sú að Liverpool hefur unnið alla sex leiki sína í deildinni þegar fyrirliðans hefur ekki notið við. Gerrard hefur verið frá keppni síðustu vikur vegna meiðsla og ekki ljóst hvenær hann snýr til baka.
Gerrard hefur spilað 22 leiki í deildinni á tímabilinu og í þeim leikjum hefur Liverpool unnið 9 leiki, gert 6 jafntefli og tapað 7.