Samkvæmt umboðsmanni brasilíska markvarðarins Neto, sem spilar með Fiorentina á Ítalíu, er enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool á höttunum eftir starfskröftum hans og hyggst þar með reyna að stela honum frá Ítalíumeisturum Juventus sem hafa verið orðaðir við kappann.
Þetta kemur fram í frétt Liverpool Echo um málið.
Samningur Neto rennur út í vor og samkvæmt umboðsmanninum Stefano Castagna er Neto á leið frá félaginu í vor, það sé það eina sem staðfest er.
Mörg félög hafa áhuga á markverðinum og staðfesti Castagna að eitt þeirra væri Liverpool. Neto er 25 ára gamall og hefur spilað 63 leiki fyrir Fiorentina við góðan orðstír.