Middlesbrough er komið á topp ensku B-deildarinnar í knattspyrnu eftir 1:0 útisigur gegn Norwich í kvöld.
Eina mark leiksins leit dagsins ljós á 8. mínútu og það var sjálfsmark frá norska landsliðsmanninum Alexander Tettey.
Middlesbrough hefur 84 stig í efsta sæti en liðið á tvo leiki eftir. Bournemouth hefur 83 og á þrjá leiki eftir, Watford hefur 82 stig og á þrjá leiki eftir og Norwich hefur einnig 82 stig en á þrjá leiki eftir.