Tímabilið hjá kólumbíska framherjanum Radamel Falcao hjá Manchester United hefur verið hrein martröð og ekki eru miklar líkur á því að hann verði um kyrrt á Old Trafford.
Falcao hefur aðeins skorað 4 mörk á leiktíðinni, jafnmörg og miðvörðurinn Chris Smalling, en Kólumbíumaðurinn var síðast á skotskónum í sigri gegn Leicester á Old Trafford þann 31. janúar þegar hann skoraði annað mark liðsins í 3:1 sigri.
Það er ekki nóg með að Falcao hafi ekki skorað í háa herrans tíð heldur hefur honum ekki tekist að hitta rammann á mark mótherjanna frá því hann skoraði á móti Leicester en hann hefur komið við sögu í níu leikjum síðan þá. Framherjinn hárprúði átti að vísu skot í utanverða stöngina í leiknum á móti Chelsea á laugardaginn en það telur ekki í þessari tölfræði.