Kærður fyrir kynferðisbrot

Adam Johnson.
Adam Johnson. AFP

Enski knattspyrnumaðurinn Adam Johnson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Sunderland, var í dag kærður fyrir að kynferðislegt ofbeldi gegn 15 ára stúlku.

Johnson er sakaður um að hafa átt kynmök við stúlkuna. Hann var handtekinn á heimili sínu í síðasta mánuði eftir að lögreglu hafi borist kvörtun frá föður stúlkunnar. Johnson var í yfirheyrslu hjá lögreglunni í nokkra klukkutíma en var síðan sleppt gegn tryggingu.

Johnson, sem var í herbúðum Manchester City áður en hann fór til til Sunderland fyrir þremur árum, á að baki 11 leiki með enska A-landsliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert