Sky gaf Gylfa 8 í einkunn

Gylfi fagnar marki sínu gegn Newcastle í dag.
Gylfi fagnar marki sínu gegn Newcastle í dag. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson fékk góða fyrir frammistöðu sína með Swansea í 3:2 sigri gegn Newcastle á St.James Park í dag.

Gylfi fékk 8 í einkunn hjá Sky Sports en íslenski landsliðsmaðurinn skoraði eitt mark og lagði upp í sigri velska liðsins.

Hjá netmiðlinum goal.com var Gylfi valinn maður leiksins en hann fékk 8 í einkunn og hann fékk líka 8 í einkunn hjá netmiðlinum Wales Online.

Gylfi hefur þar með skorað 6 mörk í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og stoðsendingar hans eru orðnar 10. Aðeins Cesc Fábregas hjá Chelsea hefur átt fleiri stoðsendingar eða 16 talsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert