Eiður Smári Guðjohnsen var á Stamford Bridge í dag og sá sína gömlu félaga í Chelsea taka á móti Englandsmeistarabikarnum eftir sigurinn gegn Sunderland í lokaumferð deildarinnar.
Eiður Smári og liðsfélagar hans í Chelsea-liðinu tímabilið 2004-05 voru heiðraðir fyrir leikinn en þeir hömpuðu Englandsmeistaratitlinum.
Eiður Smári lék með Chelsea frá árinu 2000 til 2006 og varð í tvígang Englandsmeistari með liðinu. Hann lék 186 deildarleiki með Chelsea-liðinu og skoraði í þeim 54 mörk.