Paul Clement, aðstoðarþjálfari Evrópumeistara Real Madrid, er talinn líklegastur til að taka við liði Derby County í ensku B-deildinni.
Steve McClaren var rekinn í gær, en Derby mistókst að tryggja sér sæti í umspilinu fyrir ensku úrvalsdeildina að ári. Þá hefur hann verið orðaður við stjórastöður annarra liða sem fór ekki vel í forráðamenn Derby.
Clement er 43 ára gamall og hefur verið aðstoðarmaður Carlo Ancelotti í tvö ár, en Ancelotti var sem kunnugt er rekinn úr starfi hjá Madrídingum í gær. Hann byrjaði þjálfaraferil sinn hjá Chelsea í kringum árið 1990 og kom aftur inn í þjálfarateymið árið 2007. Taki hann við Derby verður það hans fyrsta starf sem knattspyrnustjóri.