Robin van Persie, framherji Manchester United og hollenska landsliðsins, setti myndir af sér á Twitter í gær þar sem hann sést fagna með leikmönnum Chelsea og erkifjendanna í Manchester City.
Þegar betur er að gáð kom hins vegar í ljós að um var að ræða lið Chelsea og City skipað leikmönnum níu ára og yngri sem tóku þátt í Robin van Persie-mótinu, sem er alþjóðlegt mót á vegum Hollendingsins fyrir krakka á aldrinum 9-10 ára.
Viðbrögð stuðningsmanna United létu þó ekki á sér standa og voru helst til neikvæð. Svöruðu margir að hann ætti að eyða tístum sínum hið snarasta.
Very proud of you lads. Man City u9 well done! @RvPersietournam pic.twitter.com/aHK3kA4WLe
— Robin van Persie (@Persie_Official) May 31, 2015
Brilliant day here with the Chelsea future stars well done lads 👏 @RvPersietournam pic.twitter.com/z3RgwSWCwq
— Robin van Persie (@Persie_Official) May 31, 2015