Falcao á leiðinni til Chelsea

Radamel Falcao í leik Kólumbíu og Venesúela í Copa America …
Radamel Falcao í leik Kólumbíu og Venesúela í Copa America í vikunni. AFP

Englandsmeistarar Chelsea hafa samið við Mónakó um kaup á kólumbíska framherjanum Radamel Falcao, sem lék með Manchester United í vetur, samkvæmt heimildum Sky Sports en frétt þess efnis var birt rétt í þessu á Twittersíðu stöðvarinnar.

Falcao er 29 ára gamall og var lánsmaður hjá United í vetur en náði sér engan veginn á strik. Hann skoraði fjögur mörk í 26 leikjum fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni.

Hann hefur áður verið í röðum Mónakó, Atlético Madrid, Porto og River Plate og fyrir þessi félög skoraði hann 138 mörk í 229 deildaleikjum. Þá hefur Falcao skorað 25 mörk í 58 landsleikjum fyrir Kólumbíu en hann missti af heimsmeistaramótinu í Brasilíu síðasta sumar þar sem hann sleit krossband í hné fyrr á árinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert