Chelsea með Stones í sigtinu

John Stones á ferðinni í grannaslagnum við Liverpool.
John Stones á ferðinni í grannaslagnum við Liverpool. AFP

Englandsmeistarar Chelsea eru að undirbúa kauptilboð í miðvörðinn John Stones sem er á mála hjá Everton.

Stones, sem er 21 árs gamall, hefur leikið sérlega vel með Everton frá því það keypti hann frá Barnsley fyrir 3 milljónir punda árið 2013. Stones hefur hækkað verulega í verði síðan þá og Chelsea gæti þurft að punga út allt að 20 milljónum punda fyrir miðvörðinn sem vann sér sæti í enska landsliðinu í fyrsta sinn í fyrra og hefur spilað fjóra leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert