Nokkrir stuðningsmenn Englandsmeistara Chelsea eru ekki sáttir við vistaskipti tékkneska markvarðarins Petrs Cechs frá Chelsea yfir til Arsenal en frá félagaskiptunum var gengið í gær.
Á samskiptamiðlinum twitter lýstu margir stuðningsmenn Chelsea vonbrigðum sínum yfir þeirri ákvörðun Cechs að fara til Arsenal og einn gekk svo langt að senda Tékkanum morðhótun. Hann skrifaði á twitter:
„Kveddu fjölskyldu þína í síðasta sinn áður en hún fer að sofa. Þú munt ekki sjá hana á morgun, hálfvitinn þinn.“
Og annar reiður stuðningsmaður Chelsea skrifaði:
„F ... you Petr Cech. Ég trúi því ekki að þú hafir farið til Arsenal. Ég óska þess innilega að Stephen Hunt hefði bundið enda á líf þitt.“
Stephen þessi Hunt lenti í samstuði við Cech í leik Chelsea og Reading fyrir nokkrum árum þar sem Cech fékk þungt höfuðhögg og hefur notað hlífðarhjálm síðan þegar hann hefur varið mark sitt.