Tony Pulis, knattspyrnustjóri West Brom, er mjög áhugasamur að klófesta Rickie Lambert, framherja Liverpool, sem er metinn á þrjár milljónir punda.
Hinn 33 ára gamli Lambert kom til Liverpool í fyrra frá Southampton, en var lítið í sviðsljósinu og er talinn á útleið frá Anfield. Auk West Brom hefur hann verið orðaður við Leicester og Norwich.
„Það sem ég hef heyrt er að hann er í frábæru standi og æstur í að spila fótbolta. Hann spilaði ekki mikið í fyrra svo að fá hann til félagsins væri eins og að fá nýjan bíl beint úr skúrnum. Það þarf bara að setja á hann smá bensín og þá fer hann á siglingu,“ sagði Pulis.