Framherjinn Rickie Lambert var ekki lengi að reima á sig skotskóna eftir að hann gekk til liðs við West Bromwich Albion í dag frá Liverpool.
Lambert fór beint í æfingaleik með WBA gegn Bristol Rovers í kvöld og strax á 23. mínútu var hann búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið og koma því yfir. Lambert var aftur á ferðinni á fyrstu mínútu seinni hálfleiks og skoraði því tvö mörk í 4:0 sigri WBA.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem WBA hefur fengið til sín í sumar en áður voru komnir þeir James McClean frá Wigan og James Chester frá Hull City.