Berbatov aftur í ensku úrvalsdeildina?

Dimitar Berbatov.
Dimitar Berbatov. AFP

Flest bendir til þess að búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov sé á leið aftur í ensku úrvalsdeildina.

Berbatov, sem er 34 ára gamall og gerði garðinn frægan með Tottenham og Manchester United, er sterklega orðaður við Aston Villa og er líklegt að hann skrifi undir samning við félagið á mánudaginn.

Berbatov lék með Monaco á síðustu leiktíð en var þar áður í herbúðum Fulham.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert