Gylfi Sigurðsson og félagar hans í Swansea City luku undirbúningi sínum fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni með því að gera markalaust jafntefli við spænska liðið Deportio La Coruna á Liberty vellinum í Swansea í kvöld.
Gylfi lék allan seinni hálfleikinn. Hann var ekki langt frá því að skora en aukaspyrna hans af um 20 metra færi fór rétt yfir markið.
Swansea sækir Englandsmeistara Chelsea heim í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn eftir viku.