Forráðamenn Manchester United hafa loksins afhjúpað nýju búningana sem félagið mun leika í á næstkomandi keppnistímabili. Búningurinn er frá þýska íþróttavöruframleiðandanum Adidas, en árið 2014 undirrituðu eigendur Manchester United samning við Adidas.
Þar með lýkur 13 ára samstarfi Manchester United við bandaríska íþróttavöruframleiðandann Nike. Samningur Manchester United er til tíu ára og veitir félaginu 750 milljón punda í tekjur á samningstímanum.
A meðfylgjandi mynd má sjá Ashley Young, Juan Mata og Daley Blind í nýju Adidas búningunum.