Það var gaman að sjá viðbrögð Louis van Gaal knattspyrnustjóra Manchester United og aðstoðarmanns hans, Ryan Giggs, þegar Javier Hernandez brást bogalistin á vítapunktinum í leiknum gegn Club Brugge í kvöld.
Hernandez rann á afturendann í þann mund sem hann sparkaði í boltann og skot Mexíkóans fór framhjá markinu. Van Gaal og Giggs litu hvor á annan en viðbrögðin má sjá í myndskeiðinu hér að neðan.
Louis van Gaal and Ryan Giggs react to @CH14_'s penalty miss. #UCL #MUFC https://t.co/cGSw235cgm
— BT Sport Football (@btsportfootball) August 26, 2015