Borussia Dortmund og Manchester United eiga í viðræðum þess efnis að Adnan Januzaj fari að láni til Dortmund frá United.
Þessu segist Sky Sports hafa heimildir fyrir. Samkvæmt Sky hafa fleiri félög áhuga á að fá Januzaj að láni, eða Everton, Tottenham, Marseille og Valencia.
Januzaj hefur leikið tvo deildarleiki á tímabilinu og skoraði sigurmarkið gegn Aston Villa 14. ágúst. Hann lék einnig báða leikina við Club Brugge í umspilinu um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu.