Sir Alex Ferguson, fyrrum knattspyrnustjóri Manchester United, segir það ekki hafa verið mistök af sér að fá David Moyes til þess að taka við liðinu þegar hann settist í helgan stein á sínum tíma.
Moyes var rekinn eftir aðeins átta mánuði í starfi, en þrátt fyrir það segir Ferguson að hann hafi gert rétt með því að falast eftir kröftum hans. „Við gerðum eins vel og við gátum í þessum aðstæðum og völdum réttan mann,“ sagði Ferguson, sem lét af störfum eftir 26 ár fyrir rúmum tveimur árum.
Moyes er nú stjóri Real Socieadad á Spáni þar sem Alfreð Finnbogason er samningsbundinn, en hann er sagður hafa hafnað því að taka við Sunderland sem nú leitar að nýjum stjóra.