Klopp vill sína menn með sér

Jürgen Klopp náði góðum árangri með Dortmund í Þýskalandi.
Jürgen Klopp náði góðum árangri með Dortmund í Þýskalandi. AFP

Jürgen Klopp verðandi knattspyrnustjóri Liverpool hefur óskað eftir því að taka fyrrum aðstoðarmenn sína með sér til Anfield.

Um er að ræða Bosníumanninn Zeljko Buvac og Þjóðverjann Peter Krawietz en þeir voru í lykilhlutverkum í þjálfarateymi með Klopp þegar hann þjálfaði þýska liðið Dortmund.

Fastlega er búist við því að Klopp verður kynntur til sögunnar hjá Liverpool á föstudaginn en hann hefur samþykkt að gera þriggja ára samning við félagið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert