Enski knattspyrnumaðurinn Dele Alli lék sinn fyrsta landsleik fyrir England í gær þegar liðið sigraði Eistland 2:0 í undankeppni EM á Wembley. Alli, sem er einungis 19 ára, kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik.
Þetta var níundi sigur Englands í jafnmörgum leikjum í undankeppninni en England er ein þeirra þjóða sem hefur tryggt sér þátttökurétt á EM í Frakklandi á næsta ári. Alli var mjög ánægður að fá að taka þátt og leika sinn fyrsta landsleik.
Hann lét ánægju sín í ljós á twitter, eins og má sjá hér fyrir neðan.
So Honoured & proud to make my debut for my country last night at Wembley! Hopefully many more appearances to come 🙏 pic.twitter.com/Hjv1Ymiy6A
— dele alli (@dele_alli36) October 10, 2015