Sóknarmaðurinn Diego Costa var hundfúll með að sitja á bekknum þegar Chelsea gerði markalaust jafntefli við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann virtist senda José Mourinho, knattspyrnastjóra Chelsea, skilaboð þess efnis.
Þrátt fyrir að hafa ekki náð að skapa sér almennileg færi sendi Mourinho sóknarmanninn ekki inn á völlinn. Costa hitaði reyndar lengi upp en varð að gera sér að góðu að fylgjast með öllum leiknum af hliðarlínunni.
Eftir langa upphitun fékk Costa sér loks aftur sæti á varamannabekknum. Hann fór þá úr vesti sem hann hafði verið í þegar hann hitaði upp og virtist reyna að henda því í átt að Mourinho. Myndskeið af því má sjá hér fyrir neðan:
Costa not happy! https://t.co/k9l0Ak6XKq
— Footy Accumulators (@FootyAccums) November 29, 2015