Stuðningsmenn Chelsea hafa ekki verið ánægðir með spænska miðjumanninn Cesc Fábregas það sem af er tímabili. Hann átti ekki sinn besta dag þegar Chelsea gerði markalaust jafntefli við Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Sérfræðingar hafa talað um að Spánverjinn virki saddur eftir að hafa orðið enskur meistari á síðasta keppnistímabili. Hann hleypur lítið og tæklar minna. Hans sterkasta hlið, sendingar, var eitthvað að klikka í dag.
Sjá má myndskeið af Fábregas úr leiknum í dag hér að neðan:
.@i_neel92 Here,enjoy fabregas comedy pic.twitter.com/tSEpBPgLiB
— Papu (@SemperFiUnited) November 29, 2015