Jamie Vardy er aðalmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þessa dagana.
Þessi 28 ára gamli framherji bætti um helgina met Ruud van Nistelrooy með því að skora í ellefta deildarleiknum í röð, þegar Leicester gerði 1:1-jafntefli við Manchester United í toppslag.
Það verður líklega erfitt fyrir Leicester að halda Vardy í janúar. „Stóru“ liðin fylgjast vel með kappanum, og virðast raunar flest hafa mikil not fyrir leikmann sem er þegar kominn með 14 mörk eftir jafnmargar umferðir. Hann hefur skorað tvöfalt fleiri mörk en nokkur af framherjum keppinautanna í titilbaráttunni.