„Gerist ekki betra en þetta“

Wayne Rooney fagnaði eðlilega eftir að hann skoraði gegn Liverpool.
Wayne Rooney fagnaði eðlilega eftir að hann skoraði gegn Liverpool. AFP

Wayne Rooney, framherji Manchester United á Englandi, var í skýjunum eftir 1:0 sigur liðsins á Liverpool á Anfield í dag.

Enski framherjinn skoraði í sínum fjórða leik í röð gegn Liverpool í dag en hann skoraði sigurmarkið á 78. mínútu leiksins.

Sigurinn var afar mikilvægur fyrir Louis van Gaal og lærisveina hans en liðið er nú í 5. sæti með 37 stig. Rooney var ánægður með sigurinn sem hefur mikla þýðingu fyrir hann, enda uppalinn í Everton.

„Þetta er augljóslega einstök tilfinning. Það er alltaf gaman að skora gegn Liverpool. Þetta eru frábær úrslit fyrir United en svona persónulega þá gerist þetta bara ekki mikið betra en þetta,“ sagði Rooney.

„Frammistaðan í dag skiptir ekki miklu máli, heldur eru það úrslitin sem skipta öllu,“ sagði hann að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert