„Spiluðum virkilega vel“

Claudio Ranieri.
Claudio Ranieri. AFP

Claudio Ranieri var ánægður með leik sinna manna gegn Liverpool í kvöld en hinn magnaði Jamie Vardy skoraði bæði mörk liðsins í 2:0 sigri og Leicester heldur þar með þriggja stiga forskoti sínu í deildinni.

„Við spiluðum mjög vel og pressuðum stíft á gott lið Liverpool. Fyrra markið hjá Vardy var hreint ótrúlegt. Liðið er í góðum gír en nú ríður á að fá góða endurheimt því munum þurfa að hlaupa mikið í leiknum á móti Manchester City,“ sagði Ranieri en toppliðin tvö mætast á Ethiad vellinum í Manchester um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert