Laun Vardy tvöfaldast

Jamie Vardy fagnar sigri Leicester City gegn Manchester City um …
Jamie Vardy fagnar sigri Leicester City gegn Manchester City um síðustu helgi. AFP

Jamie Vardy, framherji Leicester City, var launuð góð frammistaðan hans á yfirstandandi leiktíð með nýjum samningi sem hann undirritaði í gær. 

Heimildir Daily Mail herma að laun Vardy muni tvöfaldast samkvæmt nýjum samningi hans við félagið, það er úr 40 þúsund pundum á viku í um það bil 80 þúsund pund á viku.

Leicester City trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fimm stiga forskot á erkifjendurna Tottenham Hotspur og Arsenal sem fylgja í humátt á eftir.

Vardy hefur verið einn af lykilmönnunum í velgengni Leicester City á leiktíðinni, en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með 18 mörk í 25 leikjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert