Fjögur efstu liðin mætast innbyrðis

Jamie Vardy og samherjar hans í Leicester sækja Arsenal heim …
Jamie Vardy og samherjar hans í Leicester sækja Arsenal heim á sunnudaginn. AFP

Fjögur efstu liðin í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu mætast innbyrðis í 26. umferð deildarinnar sem verður um næstu helgi.

Stórleikir umferðarinnar fara báðir fram á sunnudaginn. Klukkan 12 tekur Arsenal, sem er í þriðja sæti, á móti toppliði Leicester og klukkan 16.15 eigast við Manchester City, sem er í fjórða sæti, og Tottenham sem er í öðru sætinu á Ethiad vellinum í Manchester.

Leicester er með 53 stig í efsta sæti, Tottenham er með 48 í öðru, Arsenal er í þriðja sætinu með 48 stig en lakara markahlutfall hefur en Tottenham og Manchester City er í fjórða sætinu með 47 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert