Bresku blöðin greina frá því í morgun að José Mourinho, fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea, hafi tjáð vinum sínum að hann muni taka við stjórastarfinu hjá Manchester United í sumar.
Mourinho fékk reisupassann hjá Chelsea í desember en vitað er að hann hefur lengi haft mikinn áhuga á að taka við starfi knattspyrnustjóra hjá Manchester United.
Hollendingurinn Louis van Gaal, stjóri United, hefur legið undir mikilli gagnrýni en sjálfur sagði hann við fréttamenn eftir leikinn við Chelsea um síðustu helgi að vangaveltur um að Mourinho tæki við starfi hans í sumar væru úr lausi lofti gripnar.