Er ekki líkur Benteke

Origi á flugi í leik með Liverpool gegn West Ham.
Origi á flugi í leik með Liverpool gegn West Ham. AFP

Belgíski sóknarmaðurinn Divock Origi segir að hann sé ekki líkur samherja sínum Christian Benteke á knattspyrnuvellinum. Origi, sem hefur komið við sögu í átta leikjum Liverpool í úrvalsdeildinni í vetur, lærir samt ýmislegt af samlanda sínum.

„Við náum ágætlega saman og reynum að hjálpast að til að við verðum enn betri. Christian (Benteke) er ekki eins og ég á vellinum og við höfum ekki svipaðan stíl. Hann reynir samt að hjálpa mér þegar hann getur,“ sagði Origi.

„Ég er ennþá ungur og það hjálpar mér mikið að læra af öðrum sóknarmönnum. Ég verð bara betri af því að æfa með mönnum eins og Benteke og Sturridge,“ bætti hinn tvítugi Origi við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert