Klopp ánægður með að geta nýtt Benteke í kvöld

Emre Can og Christian Benteke fagna marki gegn Crystal Palace.
Emre Can og Christian Benteke fagna marki gegn Crystal Palace. AFP

Christian Benteke er klár í slaginn með Liverpool í kvöld þegar liðið mætir Villarreal á Spáni í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er hæstánægður með að fá Benteke aftur í sinn hóp en Benteke hefur verið úr leik síðasta mánuðinn eftir að hafa meiðst í hné í landsliðsverkefni með Belgíu.

Liverpool missti annan framherja, Divock Origi, um síðustu helgi en hann meiddist illa í grannaslagnum við Everton.

„Bestu fréttirnar eru þær að Christian er kominn aftur. Hann hefur ekki náð sérstaklega mörgum æfingum síðustu vikur en hann er búinn að vera með okkur síðustu daga,“ sagði Klopp.

„Hann er ekki í sínu besta formi en hann er samt í mjög góðu formi, það er á hreinu. Það er fullkomið að fá hann aftur. Við erum bara með leikmenn hér í Villarreal sem eru tilbúnir að taka þátt í leiknum. Hér eru engir túristar. Ef að við þurfum hann þá getum við notað hann,“ sagði Klopp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka