Enska borgin Leicester fagnaði ekki bara enska meistaratitlinum í knattspyrnu í kvöld - heldur eignaðist hún líka heimsmeistara.
Mark Selby frá Leicester sigraði í kvöld Ding Junhui frá Kína í úrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu í snóker sem lauk í Crucible-leikhúsinu í Sheffield í kvöld.
Selby varð þar með heimsmeistari í annað sinn á þremur árum en hann vann úrslitaleikinn 18:14.
Hann er mikill stuðningsmaður Leicester City og fagnaði í kvöld með fána félagsins.